04.26.06

Vika 4 að ljúka, vika 5 að byrja!

Skrifað í Uncategorized kl. 5:43 pm af atakninas

Jæja :) ég brunaði semsagt í vigtun aðan. Þvílikt spennt, en eitthvað kvíðin líka. Var alveg með fiðring í maganum þegar ég steig á vigtina! :) hehe ekkert smá spennt!

Allavega talan var 75,7 kg! sem er bara 700g meira en vigtin heima segir á morgnanna á tómann maga á evuklæðunum! Vúhú! Og það þýðir! að ég léttist um!

2,1 kg!!!!! þessa vikuna! hehe

Þetta hefur þá farið af svona:

vika 1 – 1,7 kg

vika 2 – 1,2 kg

Vika 3 + 1,2 kg ;( páskar!

Vika 4 – 2,1 kg!

Sem gera 3,8 kg á 4 vikum. Ekki svo slæmt ha!?

Er að fara á kaffihús í kvöld að hitta stelpur sem ég er nýbúin að kynnast. Hlakka til að hitta þær. Ef ég fæ mér eitthvað annað en vatn þá verður það sykurlaust gos.

Var að spá í einu, nú var ég 80 kg á heimavigtinni þegar ég byrjaði en 79,5 á DDv vigtinni. Miðað við heimavigtina er ég búin að léttast um 5 kg en DDv 3,8 kg.

Ef þið eruð spurðar hvaða tölu segiði þá? semsagt spurðar “hvernig gengur? Hvað er farið mikið?” ég nenni ekki að útskýra þetta alltaf í hvert skipti hehe :) og veit því ekki hvað ég ætti að segja, enginn rosalegur munur á tölunum, 1,2kg en 5 kg hljóma betur en 3,8. En samt er ég ekki viss.

Jæja, ætla að skella inn mælistiku hér fyrir neðan, með hjálp Kallsins :) svo ég geti gert það sjálf næst. Svo í kvöld koma svo fyrir og eftir myndir! kallinn neitaði að taka fyrr :) hehe