04.26.06
Vika 4 að ljúka, vika 5 að byrja!
Jæja
ég brunaði semsagt í vigtun aðan. Þvílikt spennt, en eitthvað kvíðin líka. Var alveg með fiðring í maganum þegar ég steig á vigtina!
hehe ekkert smá spennt!
Allavega talan var 75,7 kg! sem er bara 700g meira en vigtin heima segir á morgnanna á tómann maga á evuklæðunum! Vúhú! Og það þýðir! að ég léttist um!
2,1 kg!!!!! þessa vikuna! hehe
Þetta hefur þá farið af svona:
vika 1 – 1,7 kg
vika 2 – 1,2 kg
Vika 3 + 1,2 kg ;( páskar!
Vika 4 – 2,1 kg!
Sem gera 3,8 kg á 4 vikum. Ekki svo slæmt ha!?
Er að fara á kaffihús í kvöld að hitta stelpur sem ég er nýbúin að kynnast. Hlakka til að hitta þær. Ef ég fæ mér eitthvað annað en vatn þá verður það sykurlaust gos.
Var að spá í einu, nú var ég 80 kg á heimavigtinni þegar ég byrjaði en 79,5 á DDv vigtinni. Miðað við heimavigtina er ég búin að léttast um 5 kg en DDv 3,8 kg.
Ef þið eruð spurðar hvaða tölu segiði þá? semsagt spurðar “hvernig gengur? Hvað er farið mikið?” ég nenni ekki að útskýra þetta alltaf í hvert skipti hehe
og veit því ekki hvað ég ætti að segja, enginn rosalegur munur á tölunum, 1,2kg en 5 kg hljóma betur en 3,8. En samt er ég ekki viss.
Jæja, ætla að skella inn mælistiku hér fyrir neðan, með hjálp Kallsins
svo ég geti gert það sjálf næst. Svo í kvöld koma svo fyrir og eftir myndir! kallinn neitaði að taka fyrr
hehe

Verðandi mjóna sagði,
apríl 27, 2006 kl. 8:49 am
vá 2,1 kíló…..það er ekker smá flott.
Ég miða alltaf við vigtunina á dönsku vigtinni,
en þú getur alveg slumpað tölunni og sagt að
þú sért búin að missa 4…..eða 5….það skiptir svo sem
ekki máli bara að þú vitir hversu mikið þú sért búin að missa
Hafdís sagði,
apríl 28, 2006 kl. 12:36 pm
Blessuð …
)
Vá sé að þú ert komin á þvílíka ferð … frábært allveg
Ég kíki nú alltaf við þó að maður sé latur að commenta…. Verður gaman að fylgjast með þér skvís …
Kv. Hafdís (valkyrja)
75kg sagði,
apríl 28, 2006 kl. 8:00 pm
Það er ekkert smá, 2.1 kg, til hamingju með léttinginn! En já þú mátt alveg linka á mig!
Lilja sagði,
apríl 30, 2006 kl. 4:02 pm
Já og mátt alveg linka á mig, er samt ekki í DDV.