04.29.06
Vika 5 hálfnuð
Vika 5 er hálfnuð og so far so good. Langar nú samt í nammi ;(
En jæja.. fæ mér ís á eftir.
Prufaði að baka kryddkökuna.. fannst hún ekki góð,hefði verið góð ef ekki væru þessar sveskjur í henni. Jukk. Eplakakan var betri. Prufa eitthvað annað næst. Eru einhverjar að baka bara hálfa uppskrift? Semsagt sem passar akkurat í hádeginu í stað 2 daga köku? Bara spekúlera.
Annars með myndirnar, ja ég kann ekki að setja þetta inn og kallinn þarf að hjálpa mér, og hingað tilhefur hann ekki nennt því. Læt vita þegar þær eru komnar inn.
Farin að hlakka svo til að fara í vigtun, vildi bara óska að tíminn liði hraðar! hehe get varla hugsað um annað þessa dagana en hvað gerist í næstu vigtun! OMG! hvað maður er orðin sjúkur!
Annars var ég svo glöð í morgun!
ætla framvegis að vigta mig um helgar heima..bara sjá hvað ég er dugleg. Þó DDV vigtin sé aðeins öðruvísi, enda í fötum og búin að borða og drekka helling (en samt fer hún slatti niður þar) þá er hún næstum komin niður um 6 kg hérna heima! OMG! trúði þessu varla í morgun. 74.2 kg. OMGOMGOMGOMGOMGOMG!!
Trúði þessu ekki!!! Og hlakka svo til næstu helgi hehehehehehe því vonandi fer nú meira en 300 g af mér
hehe og þá sé ég 73 eitthvað kg!!! ohhhh hef ekki séð þá tölu í svona 1 næstum 2 ár líklega! og þá ætla ég að prufa gallabuxur sem ég hef ekki komist í lengi. Uppáhaldsbuxurnar mínar
hehe keypti þær eftir átaksnámskeið fyrir..hmm það var vorið 2003 og gat gengið í þeim í kannski ca ár. Vonandi passa þær.. held samt ég hafi verið aðeins léttari en 73 kg.. en kemur í ljós!
Hvernig gengur ykkur?
Lilja sagði,
apríl 30, 2006 kl. 4:01 pm
Frábær árangur ;D Innilega til hamingju með þetta.
Mér gengur svona lala, er rétt að hafa mig af stað aftur og ætla mér að láta það ganga upp í þetta skiptið
Létt í lundu sagði,
apríl 30, 2006 kl. 10:22 pm
Til hamingju með nýja síðu! Þetta lítur mjög vel út
Óska þér líka hjartanlega til hamingju með árangurinn að undanförnu. Fylgist spennt með á miðvikudaginn
Go girl..
Hildur sagði,
maí 1, 2006 kl. 9:16 am
Til hamingju með nýju síðuna þína. Hlakka til að fylgjast með þér
Þú mátt líka alveg linka á mig ef þú vilt