05.09.06

Gengur lalala

Skrifað í Uncategorized kl. 4:41 pm af atakninas

Jæja það gengur lalala þessa vikuna. Hef átt í smá vandræðum með að klára mjólkina.. ja vandræðm, smandræðum..bara ekki gert það. Smá lystarleysi á sunnudaginn, vaknaði seint og hafði ekki lyst á að sporðrenna svo miklum mat fyrir kvöldmat eða þá eftir kvöldmat. Svo ég sleppti hádegismatnum.. ekki sniðugt I know.

Annað sem er að plaga mig er svengd, er fairn að vera svo svöng frá ca 3 þó ég fái mér heilan banana þá! já heilan! eyði 2 ávöxtum í kaffitímann :) hehe

Svo var ég dugleg að baka á laugardaginn og kláraði extra fyrir nokkra daga og hef ekki fengið neitt á kvöldin í smá tíma og spá hvort það sá ástæðan fyrir því að mig langar gífurlega ógurlega ofsalega mikið í eitthvað gott.. 1 samloku með skinku, osti og pepperoni eða nammi..eða bara eitthvað.. skál af cherios væri fínt líka með sætuefni..bara langar í eitthvað og þegar ég er svöng fer sko nammi og sukk púkinn á stjá tvíefldur.

Eina sem ég hef gert til að láta undan honum er að stinga upp í mig sykurlausu nammi, td smint og extra mola dót eitthvað. 1-4 stk (þá úr pakkanum, ekki 4 pakka!) á dag, síðustu 3  daga… bara 1 í dag.. úff..

Ætla að passa að ég fái eitthvað gott á kvöldin næstu viku og ath hvort ég verði minna leið þá.. prufa líka fleiri mataruppskriftir.

 Jæja er farin að lesa fyrir prófið. Próf annað kveld. 

2 Ummæli »

  1. þú getur notað afganginn af mjólkurskammtinum í eftirrétti….ég bý mér til úr dr. oetker búðingsdufti (súkkulaði), sætuefni og smá vatn…..svo sét ég afganginn af mjólkuskammtinum í þetta og svo set ég jarðaber útí….og svo er sniðugt ef þú ert ekki búin með fituskammtinn þá er sniðugt að hræra búðingsduftið út með olíu en ekki vatni…hljómar ekki vel en er mikið betra en maður heldur……svo set ég þetta í fristir í smá stund……..og ef ég get þá bæti ég við súkkulaði sósu ofan á ef ég á extra eftir þann dag……sem ég geri úr 5gr 100% kakó 25gr undanrennuduft hrært með sætuefni og vatni…..
    Vona að þetta hjálpi……svo er auðvitað þessi margfrægu kanilepli…..getur gert þér þannig og sett smá sætuefni í sýrðan rjóma og borðað það saman………

  2. atakninas sagði,

    Takk fyrir commentið :) en já, hef aldrei hærrt duftið út í vatni..bara notað mjólkina.. bara var eitthvað leið þessa vikuna og nennti ekki að búa mér til búðing.. bara löt, döpur..leið..eitthvað skrítin bara..
    svo hef ég verið búin með ávextina um kvöldmatarleytið..svo ég væri þá að svindla að fá mér jarðarber í búðinginn eða kanileplin frægu :) hehe en það er að byrja ný vika og nú ætla ég að fá mér peru í kaffinu í stað banana og ís með heitum eplum á kvöldin og svo búðing..hehe léttist helling þá viku sem ég gerði það.. allavega yfir 1kginu :)


Rita ummæli