05.11.06
Dagur 44
Vá! 44 dagar, eða 1 og hálfur mánuður og 7 vika að byrja
í lok 8 viku koma svo nýjar myndir.. mánaðarlegar fyrir og eftir.
Annars gekk smá á afturfótunum í dag hjá mér. Dagurinn byrjaði eiginlega í nótt.. vaknaði um 4 til að pissa.. ekkert mál með það.. fór inn aftur og gat ekki sofnað.. leið eitthvað skringilega..furðaði mig á því hvort þetta væri legið eða hvað það væri sem olli þessum óþægindum.. reyndi að sofna..en nei 10 mín síðar var ég í spreng..aftur! Fór.. en það komu nokkrir dropar…OGGGG ljósrautt alveg pínu lítið í pappirinn.. Fannst þetta nú skrítið.. var með skrítna tilfiningu.. milli kláða og sviða.. og átti erfitt með að sofna.. fann ekki nógu þægilega stellingu.. fór 2x í viðbót og í seinna skiptið fór ég fram með bók í smá tíma, hélt mér liði kannski betur sitjandi.. og það kom alltaf meira og meira í pappírinn. Var farina ð velta fyrir mér hvort ég væri að fá milliblæðingar.. en ath málið betur og komst að því að þetta væri ekki tiðablóð.. Var nú bara svo þreytt þarna kl 6 í morgun að ég bara hafði ekki rænu á að verða áhyggjufull.. meina blóð þegar þú pissar er ekki normalt!
Jæja svo sofnaði ég loks eftir langa mæðu.. vaknaði um 9… og þá var sko heldur betur rautt! Hringdi í mömmu til að fá hana til að staðfesta það að blóð í þvagi gæti verið 1 af einkennum blöðrubólgu.. hún varð nú bara áhyggjufull og hélt þetta gæti verið alvarlegra..og stressaði mig aðeins með því.. en maður er nú barnið hennar
svo skiljanlega verður hún áhyggjufull ef eitthvað er að, enda langt á milli okkar.
Hringdi á bráðamótökuna, bara til að vita hvert ég ætti að fara, er ekki með lækni hér í Rvk. Þurfti að hringja á 3 staði þar til mér var sagt að Hjúkka myndi hringja í mig þegar hún yrði laus.
Jæja, hún hringdi, spjölluðum um einkennin og ég átti að koma með prufu. Þar sem það kom minna blóð kom ég með tvær, var ekki viss hvort þetta greindist í þvaginu.
Jújú.. Hvít blóðkorn, prótein og blóð í þvagi.
Kannski ekki nema von að ég hef veirð slöpp.. Svæsin blöðrubólga sem hefur verið að grassera í einhvern tíma.. fann samt ekki til fyrr en í nótt..nema 1x-2x á þriðjudaginn. Læknirinn sagði að blaðran væri eitthvað tætt og því blæddi úr henni… hljómaði ekki vel. Fékk Monotrim og ef þetta lagast ekki eftir þann skammt þá fæ ég ný lyf. Fékk einnig símatima við hann á þriðjudaginn og fæ að vita úr ræktuninni.
Svo að í dag er ég búin að vera að míga blóði.. er enn að því.
Var svo mikið niður fyrir í dag að ég gleymdi morgunávextinum… enn ég bjarga því í kvöld
Er aftur farin að auka við mig grænmetið smátt og smátt þar sem að maginn er kominn í lag, hef farið rólega í það.
Svo keyptum við okkur Gasgrill áðan á tilboði í Hagkaup
Vil biðjast afsökunnar ef þessar pissuferða lýsingar og blóð saga fer illa í ykkur. Eins og ein sagði þá er þetta nokkurskonar dagbókin mín, finnst gott að geta sett þetta hérna inn, hvernig mér líður og svona.
Hafiði það gott!