05.16.06

FALL!

Skrifað í Uncategorized kl. 11:36 pm af atakninas

OHH!!! Svoldið fúl út í sjálfa mig núna, en ég bara nenni ekki að skamma sjálfa mig… vissi að ég væri að gera rangt, valdi að gera þetta og ætla að reyna að taka þetta föstum tökum það sem eftir er af mínu átaki.

Ok, ég leyfði mér um helgina.. ok allt í lagi.. Borðaði eftir DDv að svona 90%. Svo í gær gekk allt vel þar til í kvöldmatnum…óvenju þreytt.. enda rósa á leiðinni og hún er alltaf þreytandi kellan sú.

Og það var keyptur kjúlli og franskar (kjúlli var vigtaður samkvæmt DDV, svo borðaði ég grænmeti og franskar.) aham… ekki sniðugt…

Jæja ekki tók betur við í dag.. ákvað að panta pizzu í kvöldmatinn.. og út af klúðri þá fengum við heilt hvítlauksbrauð frítt með.. omg.. sko hellingur eftir.. búin að ákveða að annað hvort étur kallinn þetta eða þetta fer í ruslið. Ætla ekki að svindla meir! meina ég væri ekki búin að léttast um 7.6 kg samkvæmt vigtinni heima, 6 kg samkvæmt íþróttaálfinum og guð veit hvað samkvæmt DDV (ætla ekki að mæta á morgun, busy dagur og ég kemst ekki) ef ég væri að leifa mér þessa hluti og hvað þá jafn oft og á síðustu dögum.

Verð bara að herða mig upp, gera þetta af fullum krafti, dugleg að fá mér ís í harðindum, vera með pottþétt plan, grænmeti og uppskriftir þegar ég kem heim úr vinnu.

Við ætlum að grilla eitthvað gott með Eurovison á laugardaginn.. Eitthvað bara DDV!

Ástæður gætu verið þessar fyrir mínu falli: Leti, leiði, smá agaleysi og stjórnleyfi, rósa sósa væntanleg, blekking vegna burtfarinna kg að þetta sé ekkert mál að balansera svona junk með ddv.

Held að margt af þessu sé bara lame afsökun, ég gerði þetta, valdi þetta og við það situr, ég bít í það súra og geri mér grein fyrir því að það gæti farið upp. En mig langar svooo niður fyrir 70 að ég bara get ekki, má ekki og vil ekki gefast upp! Svo við kallinn erum að reyna að sjóða saman áætlun, einhverja enn fremur hvatningu því mér finnst ég alltaf sjá svo lítinn mun á mér.. ennþá! Finnst ég enn svo slöpp og með bumbu ;(

ER svooo fegin að ég hringdi í WC strax á eftir mælingu hjá íþróttaálfinum og er æfingum flýtt um 2-3 vikur.. ætlaði að byrja í byrjun júní. Enn ég byrja í fyrramálið. Fer kl 7 í salinn með leiðbeinanda til að búa mér til prógramm. Ætla mér nú ekki að fara að lyfta á fullu, en samt eitthvað smá og helst brenna. Stefnan verður tekin á 3 æfingar í viku. Td 2x hjól/skokk/hlaup/gang/sund og svo 1x lyfta. Semsagt eitthvað af framantöldu plús 1x lyfta :)

Lýst vel á þetta, hlakka til, og vonandi kemur drifkrafturinn minn með fítonkrafti aftur til baka á morgun! Nenni ekki að veraí svona lægð, verð bara pirruð í skapi og verð leiðinlegt við kallinn ;( góða manninn minn.

Jæja..úff púff.. búin að létta aðeins á mínu hjarta, ætla að fara að lesa smá upp í rúmi.. fer í tiltekt á morgun eftir vinnu, í kvöld er afslöppun og fljótlega svefninn fyrir ræktina :)

Gangi ykkur vel! virkilega þarf á spörkum í rassinn núna!

Íþróttaálfur

Skrifað í Uncategorized kl. 1:27 pm af atakninas

Jæja íþróttaálfurinn mætti í morgun til að vigta mig og vinnufélagana.. við köllum vigtunar manninn íþróttaálf :) hehe

Jæja, 6 cm farnir í mittið frá hans mælingu, 6 kg farin, lækkað úr 28,1 BMI í 25.9 BMI og fitu%…HREYFÐIST EKKI!!!!! Honum fannst þetta eitthvað bogið, enn ég er auðvitað ekkert að æfa svo kannski er þetta ekki skrítið.. en samt.. eitthvað hefði hún mátt þokast niður!

Bara nokkuð ánægð með þetta :) vigtin sagði í morgun 72,4 :) rosalega ánægð með það.. 7,6 kg finnst mér hljóma óraunverulegt.. finnst ég ekki hafa grennst það mikið.. er enn í fituástandi að mínu mati.. ætla að fá prógramm í ræktinni á morgun.. byrja rólega.. kannski 2x í viku hjóla og 1x lyfta.. sé til. Vil ekki lyfta of mikið meðan ég er að léttast en gera samt eitthvað..eyk það svo vonandi jafnt og þétt.

 kveð í bili!