05.16.06

Íþróttaálfur

Skrifað í Uncategorized kl. 1:27 pm af atakninas

Jæja íþróttaálfurinn mætti í morgun til að vigta mig og vinnufélagana.. við köllum vigtunar manninn íþróttaálf :) hehe

Jæja, 6 cm farnir í mittið frá hans mælingu, 6 kg farin, lækkað úr 28,1 BMI í 25.9 BMI og fitu%…HREYFÐIST EKKI!!!!! Honum fannst þetta eitthvað bogið, enn ég er auðvitað ekkert að æfa svo kannski er þetta ekki skrítið.. en samt.. eitthvað hefði hún mátt þokast niður!

Bara nokkuð ánægð með þetta :) vigtin sagði í morgun 72,4 :) rosalega ánægð með það.. 7,6 kg finnst mér hljóma óraunverulegt.. finnst ég ekki hafa grennst það mikið.. er enn í fituástandi að mínu mati.. ætla að fá prógramm í ræktinni á morgun.. byrja rólega.. kannski 2x í viku hjóla og 1x lyfta.. sé til. Vil ekki lyfta of mikið meðan ég er að léttast en gera samt eitthvað..eyk það svo vonandi jafnt og þétt.

 kveð í bili!

2 Ummæli »

  1. Hildur sagði,

    Vá svakalega flottar tölur hjá þér skvísa :) Til lukku með þetta og gangi þér vel af stað með hreyfinguna

  2. 75kg sagði,

    Frábært að það skuli ganga svona vel! :) Og til hamingju með allar þessar góðu tölur! :)


Rita ummæli