05.20.06

Kisi veikur

Skrifað í Uncategorized kl. 3:43 pm af atakninas

Já kisi minn er eitthvað veikur.

Byrjaði líklega fyrir ca viku síðan.. því við munum eftir að hafa sett í skálina hans, ca sunnudaginn síðasta. Nema hvað að hann er ekki búinn úr henni, var bara nokkur korn sem fóru af og til. Furðulegt, en hann drakk alveg vökva…

Við semsagt pældum ekkert í þessu, ég hélt að Gummi hefði sett í skálina og öfugt..en svo kastaði hann upp á þriðjudaginn.. glærum vökva sem var samt hálf froðukenndur. Nema ða þegarhann byrjar þá brá mér og honum brá við viðbrögð mín.. og hljóp inn í herbergi og undir rúm..ælandi alla leiðina.. bara vall upp úr honum þetta glæra..svo var risa stór pollur undir rúminu.. Við vorum ný komin heim.. svo ég fór að þrífa..og sá fleiri ælur inn í stofu.

Nema hvað að hann virtist alveg hress eftir þetta.. Gummi reyndi að gefa honumfisk, en hann vildi hann ekki.. var reyndar saltfiskur, gæti ekki viljað hann… Og mjólk. Hann snerti þetta ekki á þriðjudaginn.

Jæja svo á miðvikudaginn kláraði hann mjólkina.. snerti ekki fiskinn.. og svo fór hann út því hann var hinn hressasti..

Þegar við komum heim á fimmtudadinn eftir vinnu þá var hann nýlega búinn að kasta upp, svo það var þrifið aftur..og fórum við að hafa áhyggjur því hann snerti ekki matinn sinn, drakk bara. Svo Gummi fór út í búð og keypti 2 dósir af túnfisk og wiskas blautkattamat (hann er vanur að borða þurrfóður).. hann leit ekki við wiskasinu og fékk sér einn bita af túnfisknum.. Ok það var greinilega eitthvað að.. ætluðum að býða morguns og hringja í dýralækni. en þá var hann búin með túnfiskinn (1 dollu) og var hress og kátur.. Svakalega kelinn..

 Ég hringdi samt í gær í dýralækni og var sagt að hann yrði að koma ef hann mydni kasta upp aftur. Nema það gerðist ekkert í gær, hress og kátur, fór út og kláraði úr hinni dollunni af túnfisknum. Svo gerðist ekkert..við vorum svona ekki viss hvort við ættum samt að fara með hann. 

Jæja, við vöknum seint..eins og vanalega..og kallinn fer fram og ég var svona að dorma upp í rúmi..og þá var kisi búinn að kasta upp, og augljóslega túnfiskinum.. 30 mín í lokun hjá doksa.. (lokaði kl 12) svo við settum hann í búr, stukkum í fötin og æddum út, án þess að bursta í okkur tennurnar, borða eða greiða okkur. hehe svoldið úfin :)

Það kom ekki í ljós hvað var að.. hann var ekki með hita, ekki þurr, fengi greinilega nóg að drekka, en maginn var alveg tómur. Svo hann fékk meðal, mixtúru sem á að fóðra magann. Hún hélt að hann hefði kannski fengið eitthvað sem hefði ert magann eitthvað og þetta á að hjálpa til við að koma balance á magann. Hlakka ekki til að gefa honum á eftir..

Annars vorum við búin að prufa að þrífa kassann hans í bak og fyrir, spúluðum hann utan sem innan.. héldum kannski að hann væri að æla því hann vildi ekki fara á klósettið sitt. Svo þvoðum við skálarnar hans, settum sjóðandi vatn í þær og keyptum glænýtt fóður handa honum, því kannski væri hitt ónýtt. Svo vonandi kemur í ljós hvað er að.. vona að þetta hætti. Við ætlum að halda honum inni á meðan.

Svona stundum sem mig langar enn meira í aðra kisu (fáum okkur ekki því að það er svoldill start kostnaður í sprautur og geldingu og örmerkingu fyrsta árið, plús þegar maður fer í ferðalag..erfitt með 1 hvað þá 2) til að hann hefði nú einhvern félagsskap.

By the way.. finnst ykkur eitthvað að því að vilja ekki fá kisu úr Kattholti? Var að spyrjast fyrir á netinu um síður þar sem gefins kettlingar væru auglýstir og margir benntu á kattholt.. málið er að ég hef komið þarna, og aðbúnaðurinner hræðilegur. Ég væri bara hrædd um að fá einhvern geðsjúkann, taugaveiklaðann kött. Mér finnst þetta samt gott starf hjá þeim, en mér fannst aðbúnaðurinn ekki alveg nógu góður.. Meina 20 kettir í einu litlu herbergi, nánast ofan í hvor öðrum. Sumir voru úber kelnir meðan aðrir voru hvæsandi og hræddir.

Mataræðið fór smá út um þúfur út af þessu í dag, en fer í lag í kvöldmatnum (bara 1 ávöxtur þangað til).. svo ég segi bara góða skemmtun yfir Eurovision

(Smá vangaveltur samt í mér… hvort það virki að gera eins og í byrjun, svona ógeðisdæmi.. td gúffa í mig tonn af nammi, og byrja á núlli daginn eftir?, kallinum leist nú ekkert á þessa hugmynd mína..hehe hann hvetur mig óspart afram :)