05.23.06

Myndatöku frestað

Skrifað í Uncategorized kl. 12:07 pm af atakninas

Já, það hefur gengið illa undanfarið. Nammi á laugardag með júórinu (Finnland ROCKAR!) og pizza í gær, Megavika.. *dæs* skil ekki hvernig mér fannst það létt að bara hviss bang ddv 100% strax eftir páskana.. jæja.. nú er ekkert elsku mamma lengur.. nú er það harkan! vil ekki taka 2 mán mynd af mér útþanin af pizzu ;(
Kisi er orðin góður.. hakkar í sig matinn, leikur sér og er kátur. En helvíti fúll að komast ekki út. Höfum haldið honum inni út af veikindunum. Mjög fúll út í okkur að sprauta þessari mixtúru upp í hann. Snýr í mann baki fyrst á eftir og vill ekkert við mann tala.. hehe.
Svo er svo skondið að hann er að reyna að troða sér út um rifuna á glugganum inn í herbergi.. svo fyndið að horfa á aðferðirnar.. hehe. Tekst auðvitað ekki.
Annars fauk gasgrillið okkar í gær.. en skemmdist ekkert sem betur fer. Svaka kviður í gær.

Jæja vonandi gengur þetta betu í ddv.. kvöldmaturinn er alltaf í steik undanfarið.. ;( sunnudagurinn var 100% fékk mér saltfisk..namminamm.
Búin að ákveða að vera bara dugleg í eftirréttum..plana máltíðir vel.. ekkert væl.. og ekkert nammi.. ekki einu sinni leyft sér 4 júni á afmælinu okkar Gumma.

Annars gætu stórar breytingar verið í bráð.. kannski kannski ekki.. góðar breytingar.. kemur í ljós vonandi fljótlega.

5 Ummæli »

  1. zand sagði,

    Kannast alveg við erfiðleika þessa dagana… gengur eitthvað voðalega erfiðlega að halda Pollýönnu í rassvasanum og púkunum í skefjum ;) En við getum þetta alveg og ætlum okkur að gera þetta núna… ekki seinna. So let´s get on with it :) Gangi þér vel.

  2. liney sagði,

    Fauk fína nýja grillið, hahaha

  3. Erla Ösp sagði,

    Gangi þér vel!!

    KV ERla

  4. Oddný sagði,

    Vá ddv hefur greinilega virkað fyrir þig líka, rúm 7 kíló farin. Frábært hjá þér :) Nú er bara að vera dugleg í ræktinni á meðan þú átt kort í WC og koma síðan að æfa með mér ;)

  5. Borghildur sagði,

    Hæ, hæ! Ég veit að þú átt eftir að standa þig frábærlega vel, það er nú eðlilegt að gera mistök annars lagið og leyfa sér smá annars springurðu bara!! En frábær árangur hjá þér kæra vinkona! HUMM, Stórar breytingar…. ég er forvitin hvaða breytingar… ;) allavega sjáumst og hafðu það sem allra best


Rita ummæli