05.25.06

Gestur nr 2000

Skrifað í Uncategorized kl. 1:16 am af atakninas

Hver verður gestur númer 2000? Endilega kvittaðu fyrir komuna! :)

99% dagur.. er að skella í gírinna.. átti erfitt með mig, stoðst samt nammið.. bakaði mér kökur (ætlaðiað faraí stórbakstur og fá mér smá af öllu.. svindla smá en þó í ddv stíl.. átti svo ekki nóg af undanrennudufti svo þetta varð frekar lítið, gerði 2 sortir og brann kakan! hehe en smákökurnar voru fínar.. kanilkökur á DDV síðunni. Ennn þetta var nóg til að ég hætti að þrá nammi og dót.)

Fer sátt að sofa..

By the way.. rosalegt þegar hún Unnur Birna crashað þarna í Unfrú Ísland. Greyjið stelpan. Virtist sem hún hefði flækst í einhverju og bara flaug! kórónan fauk af og hún í gólfið. Vonandi meiddi hún sig ekki neitt. Fannst þetta svo leiðinlegt..finnst hún svo sæt og virkar rosalega góð og einlæg stelpa.

6 Ummæli »

  1. Hafdís sagði,

    Myndarskapur í þér í tilraununum …. þú getur þetta allveg stelpa. Vona að kisinn þinn sé allveg búinn að ná sér eftir raunirnar. Var að lesa sko :o )
    Kv. Hafdís

  2. Ragnheiður sagði,

    Úpphh þetta með Unni birnu……hef þó heyrt að þetta hafi verið bón sem var ekki nógu vel þvegið af….en þetta getur víst komi fyrir alla líka Miss World……
    Gangi þér vel

  3. Hildur sagði,

    Oh maður fær bara vatn í munninn við að heyra um þessar kökur. Ég ætla að baka í dag…það er nokkuð víst…

    Gangi þér áfram vel…

  4. 75kg sagði,

    Uss, ég var númer 2005, sá sem var 2000 hefur ekki nennt að skrifa! ;)

  5. Heiðrún sagði,

    Ég sá skilaboðin á blogginu mínu frá þér og ég sé núna að ég var alltof hvöss við þig í mínu skilaboði í sambandi við Kattholt og þau mál. Ég er ekki vön að vera svona harkaleg í skilaboðum til annarra, en ég hafði þurft daganna á undan að horfa upp á fólk sem var ekki alveg að skilja það hvað það þýðir að eiga gæludýr og það var svo mikil gremja byggð upp hjá mér sem náttúrulega sprakk í þessu skilaboði til þín, og mér þykir það mjög leiðinlegt. Ég hef alls ekki þá skoðun að þú sért ekki góður gæludýraeigandi eða skilji ekki starfið hjá Kattholti, en ég sé svo mörg slæm dæmi þar sem dýr eru virkilega að þjást vegna slæmra eigenda í mínu starfi í gæludýrabúð, og það er einungis toppurinn af ísjakanum, trúðu mér.
    Í sambandi við ofnæmið hjá manninum þínum: hefur hann prófað einhver ofnæmislyf? Ég er sjálf með ofnæmi fyrir einhverju, gæti verið frjókorna, eða gegn einhverju af dýrunum í búðinni eða bara öllu, en ég tek alltaf 1 ofnæmistöflu á hverjum degi og þá finn ég næstum því engin óþægindi. Þarf ekkert að vera ofnæmislyf sem eru skrifuð upp á hjá lækni. Hjá mér virkar t.d. Histamín mjög vel og það er hægt að kaupa í apóteki. Annars er hægt að minnka óþægindi við kattaofnæmi, með að leyfa kettinum bara að sofa í sínum bælum, en ekki í húsgögnum eða rúmum, ryksuga einu sinni á dag, þvo kettinum 1-3 í viku, og annað sem minnkar ryk og hár frá kettinum. Hjá sumum minnkar ofnæmið með tímanum, ef kötturinn er áfram á heimilinu, og aðrir taka sín ofnæmislyf og eru næstum því án óþæginda. Það er mjög misjafnt eftir fólki hvernig það gengur, en ég þekki persónulega fullt af fólki með kattarofnæmi sem á ketti og notar ýmsar aðferðir til að geta haft ketti áfram. Mín reynsla er líka sú að ef maður tekur ofnæmisvaldinn úr umhverfinu þá eykst ofnæmið fyrir viðkomandi, þannig ef þú losar þig við köttinn þá versnar kattarofnæmið hjá manninum þínum örugglega. En auðvitað er þetta hans ákvörðun hvort að hann geti þolað köttinn þá með hjálp ofnæmislyfja og þrifnaðar. Annars veit ég um engan sem vill fá kött, en það er alltaf möguleiki að gefa hann í gegnum auglýsingar á netinu.
    Koss og knús og enn aftur fyrirgefðu fyrir að vera smá “bi….”

  6. gorkúlan sagði,

    vúhú hvað þú ert dugleg skvísa… og gott að kisi er orðinn hress…. gangi þér vel…. knús


Rita ummæli