05.31.06
Spennandi!
Já… muniði að ég sagði að það gætu verið stórar breytingar í bráð? (ég er ekki ólétt né á leið upp að altarinu).
Nú við vorum bara ágætlega vongóð í byrjun, svo fengum við upplýsingar sem gerðu það að verkum að ég var bara hætt að hugsa um þetta og kallinn líka. Svo fengum við nýjar upplýsingar í dag og ja… ég myndi bara segja að líkurnar eru orðnar bara nokkuð góðar
ohh..vildi að ég mætt segja hvað er í gangi!!!!
vonandi get ég sagt eitthvað fljótlega.
kv
Jónína
Aham!
Jæja.. smá syndajátning og svo smá góðar fréttir og vondar.
Syndajátning: þegar mér gekk sem verst, borðaði sukkmat í kvöldmat og stalst í nammi (fyrripart dags er góður síðan ég byrjaði í ddv!) þá þyngdist ég um 1,2. Fórúr 72,4 í 73,6 kg.
Jæja, svo kom aðeins betri vika, ekkert svo mikið en samt betri. Þá var ég komin í 73 slétt.
Svo hef ég ekkert verið að kíkja neitt á vigtina. Ætlaði að setja mér það markmið að kíkja ekki fyrr en ég væri komin af stað með nokkra góða daga í ddv.
Jæja, mán og þriðjudagur voru góðir
ekkert sukk, en vantaði smá upp á í mjólk. skammskamm.
En já góðu fréttirnar eru þær að ég hef lést!
71,7 stóð á vigtinni áðan
VÁ! bara 1,7 kg í næsta tug! (1,8 reyndar) OMG! ok, ég er búin að ákveða að leyfa mér næstu helgi, í hófi samt. Afmælið okkar og svona..enn svo verður það harkan sex! og fram að afmælinu er harkan tekin á þetta!
Slæmu fréttirnar eru að ísskápurinn minn er aftur byrjaður að leka, ég finn ekki hvaðan, ekki neitt í honum sem lekur og er ég hrædd um að kisi sé að sleikja þetta upp og kannski sé hann alltaf að kasta uppút af þessu! Svo það verður farið á stúfana eftir nýjum.. úff púff..höfum ekki efni á því svo það verður visa rað ;( búhúhú!
Hafiði það gott í dag!