06.01.06

Gamlar buxur

Skrifað í Uncategorized kl. 10:57 am af atakninas

óhóhó! :) vaknaði í morgun og hafði uppgötvað að ég sofnaði áður en vélin væri búin! svo að ég hafði engin föt, blaut í vélinni og ekkert að gera nema skella þeim í þurrkarann. Eina sem ég hafði voru pils og bolir en mér yrði bara of kalt svoleiðis í vinnunni. Svoldið svalt hérna.

Jæja.. ég fór að gramsa..og fann föt. Jám.. ermalausann sægrænan rúllukragabol, svarta þunna peysu yfir og svo toppurinn :) buxur sem ég hef ekki notað í allavega 3 ár. Minnir að ég hafi verið í þeim sumarið sem ég vann á laugarveginum og svo man ég ekki lengra (eða nær?).

Og þær passa..perfect! Ekki of þröngar og ekki of víðar. Líður bara vel í þeim :) hvort sem ég stend eða sit.

gaman gaman! :)

1 ummæli »

  1. Nafnlaus sagði,

    Google…

    Google news and reviews…


Rita ummæli