06.05.06
Fréttir
Jæja nokkrar fréttir af mér
Búin að þyngjast aðeins, enda ekki skrítið eftir þessa helgi
búin að hafa það gott, borða óhollustu, sumt holt, en annars leyfði ég mér hvað sem er, reyndi að stilla í hóf og gekk það ágætlega (semsagt ekki éta á mig gat!) því við Gummi áttum 7 ára sambandsafmæli í gær
Góða er að nú á að taka þetta föstum tökum og klára þetta dæmi! ekkert múður..ekkert elsku mamma meir..
hehe.
Svo gáfumst við endanlega upp á ísskápnum.. lak. Fórum að morgni, allt þurrt, komum heim seinnipartinn og stór pollur fyrir utan. Held að kisi hafi jafnvel verið að lepja þetta og kastað upp. Ekkert kastað upp síðan.. ja.. man ekki.. svoldið síðan
Ekkert gengur annars að finna honum nýtt heimili.
Við höfðum verið að skoða ísskápa á netinu, fundum einn á tilboði í heimilistækjum sem okkur líkaði við. 168cm. og var frystir neðst..
ójá! frystir! no more running niður í geymslu að ná í DDV ísinn, setja í skál, borða og hlaupa aftur niður. hehe
Bjó mér til klaka í bökkunum (sér klakaskúffa/bakki) mmmm
elska klaka í gosið mitt!
En jæja, við biðum eftir mánaðarmótum til að borga eitthvað í ísskápnum (þetta er helv.. dýr tæki!) en og setja hluta á visa. Nú akkurat á útborgunardegi þá hækkaði helv..skápurinn! um 20 þús! ég hringdi og spurði hvort ég mætti ekki fá hann samt á tilboði..nei en gæti fengið hann á 10 þús minna. svo ég keypti hann… á föstudaginn
59 þús kr! takk fyrir pennt! fengum nú samt heimsendinguna frítt og þeir tóku gamla frítt líka
Svo spurðu þeir hvenær við vildum fá hann. Nú við spurðum hvort þeir gætu komið eftir kl 18 (því Gummi var að vinna til 18 og ég til 19)..nei.. gætu komið eftir 17:30..jæja, Gummi fór fyrr heim úr vinnunni…kl orðin 19 og ég hringi til að ath hvernig staðan væri, hvort hann væri ekki að koma að ná í mig..neibb..skápurinn ekki kominn! jæja.. ég labbaði bara heim meðan ég spjallaði við mömmu í gsm og litla bróður sem stóð sig by the way! alveg heavy vel í prófunum sínum
4x 10 nokkrar 9,5, 9, 1-2×8 og ein 7,5
hehe en það var í lífsleikni og bróðir minn er svoldið spes svo mamma sagðist ekki taka þessa einkunn með
hehe.
Ég var að drepast í fótunum þegar ég kom heim. Gangan var ca 30-40 mín, og auk þess haðfi verið brjálað í vinnunni, við fámenn og ég gat ekki sest niður í nokkra klst! Ekki einu sinni farið í kaffi.
Svo komst ég að því að buxurnar sem ég passaði í og fann í skápnum um daginn, ja það var gat á þeim! líklega ástæðan fyrir því að ég lagði þeim, hef örugglega hugsað "fæ ömmu til að laga þetta þegar ég passa í þær aftur!" hehe svo bara gleymdi ég þessu. Þannig að ég var í þeim 2 daga í vinnunni með gati á..
Við fórum út að borða á Nings á laugaraginn..aeins að spara, engar steikur á afmælinu okkar (það var í gær, en ég fór að vinna því það var stórhátíðarkaup svo við héldum upp á það á laugardaginn) og fórum í bío. Mjög gaman.
hmm.. já og í dag.. úff..svoldið langur pistill
.. hehe. ég komst að því í vikunni að Neró hafði eyðilagt íþróttatoppinn minn! nagað hann/étið svo að hann var of víður.. ónýtur ;( hehe hann át ekkert allan toppinn
en bút úr honum á miður góðum stað.
En ég er að fara að reyna að taka mig á..bæði hvað varðar DDV, fer td í vigtun á miðvikudaginn..hlakka ekki til að sjá töluna en hlakka til að byrja að mæta aftur! og svo er ég búin að ákveða að vera dugleg í ræktinni. Ég ætla að taka mynd af mér í bikini, og sjá svo með því að taka eftir mynd þegar ég fer í sumarfrí hver árangurinn er. Skelli þeim kannski hingað inn…veit ekki alveg. En ég fór áðan og skellti mér í útilíf og keypti mér 1stk íþróttatopp og fann svo sætan íþróttabol, adidas grænn í stærð 40
hehe ekki 42 eins og ég var vön..lít bara vel út í honum
hehe Við Gummi ætlumað fara í ræktina í fyrramálið
Hafiði það gott elskurnar!
Jónína