06.08.06
Dagur 1
Jæja, ég er byrjuð aftur!
fór í vigtun í gær, og hafði vigtin skriðið eitthvað upp. Leyt ekki einu sinni á töluna..vil ekki svekkja mig, bara halda áfram og reyna að standa mig. En hvað um það.. ég er semsagt byrjuð.. gengur svona.. ja.. ekki vel..var með massa mígreni í gær, og er enn með hausverk..svo dagurinn framundann er erfiður.
Vonandi gengur þetta vel í dag..
planið er fínt..vonandi held ég mér við það.. gæti samt farið svo að ég hefði bara ekki lyst, þar sem ég er með hausverk, og byrjað að vera bumbult..úff.. mætti snemma í vinnuna því Gummi fór á fund. Bara búin að sitja hér að lesa fréttablaðið áður en við byrjum daginn.. Langar mest að fara heim ;( en ætli ég reyni ekki að þrauka daginn.
Vonandi gengur allt vel í dag.. það MUN allt ganga vel í dag! er það ekki?