05.20.06

Kisi veikur

Skrifað í Uncategorized kl. 3:43 pm af atakninas

Já kisi minn er eitthvað veikur.

Byrjaði líklega fyrir ca viku síðan.. því við munum eftir að hafa sett í skálina hans, ca sunnudaginn síðasta. Nema hvað að hann er ekki búinn úr henni, var bara nokkur korn sem fóru af og til. Furðulegt, en hann drakk alveg vökva…

Við semsagt pældum ekkert í þessu, ég hélt að Gummi hefði sett í skálina og öfugt..en svo kastaði hann upp á þriðjudaginn.. glærum vökva sem var samt hálf froðukenndur. Nema ða þegarhann byrjar þá brá mér og honum brá við viðbrögð mín.. og hljóp inn í herbergi og undir rúm..ælandi alla leiðina.. bara vall upp úr honum þetta glæra..svo var risa stór pollur undir rúminu.. Við vorum ný komin heim.. svo ég fór að þrífa..og sá fleiri ælur inn í stofu.

Nema hvað að hann virtist alveg hress eftir þetta.. Gummi reyndi að gefa honumfisk, en hann vildi hann ekki.. var reyndar saltfiskur, gæti ekki viljað hann… Og mjólk. Hann snerti þetta ekki á þriðjudaginn.

Jæja svo á miðvikudaginn kláraði hann mjólkina.. snerti ekki fiskinn.. og svo fór hann út því hann var hinn hressasti..

Þegar við komum heim á fimmtudadinn eftir vinnu þá var hann nýlega búinn að kasta upp, svo það var þrifið aftur..og fórum við að hafa áhyggjur því hann snerti ekki matinn sinn, drakk bara. Svo Gummi fór út í búð og keypti 2 dósir af túnfisk og wiskas blautkattamat (hann er vanur að borða þurrfóður).. hann leit ekki við wiskasinu og fékk sér einn bita af túnfisknum.. Ok það var greinilega eitthvað að.. ætluðum að býða morguns og hringja í dýralækni. en þá var hann búin með túnfiskinn (1 dollu) og var hress og kátur.. Svakalega kelinn..

 Ég hringdi samt í gær í dýralækni og var sagt að hann yrði að koma ef hann mydni kasta upp aftur. Nema það gerðist ekkert í gær, hress og kátur, fór út og kláraði úr hinni dollunni af túnfisknum. Svo gerðist ekkert..við vorum svona ekki viss hvort við ættum samt að fara með hann. 

Jæja, við vöknum seint..eins og vanalega..og kallinn fer fram og ég var svona að dorma upp í rúmi..og þá var kisi búinn að kasta upp, og augljóslega túnfiskinum.. 30 mín í lokun hjá doksa.. (lokaði kl 12) svo við settum hann í búr, stukkum í fötin og æddum út, án þess að bursta í okkur tennurnar, borða eða greiða okkur. hehe svoldið úfin :)

Það kom ekki í ljós hvað var að.. hann var ekki með hita, ekki þurr, fengi greinilega nóg að drekka, en maginn var alveg tómur. Svo hann fékk meðal, mixtúru sem á að fóðra magann. Hún hélt að hann hefði kannski fengið eitthvað sem hefði ert magann eitthvað og þetta á að hjálpa til við að koma balance á magann. Hlakka ekki til að gefa honum á eftir..

Annars vorum við búin að prufa að þrífa kassann hans í bak og fyrir, spúluðum hann utan sem innan.. héldum kannski að hann væri að æla því hann vildi ekki fara á klósettið sitt. Svo þvoðum við skálarnar hans, settum sjóðandi vatn í þær og keyptum glænýtt fóður handa honum, því kannski væri hitt ónýtt. Svo vonandi kemur í ljós hvað er að.. vona að þetta hætti. Við ætlum að halda honum inni á meðan.

Svona stundum sem mig langar enn meira í aðra kisu (fáum okkur ekki því að það er svoldill start kostnaður í sprautur og geldingu og örmerkingu fyrsta árið, plús þegar maður fer í ferðalag..erfitt með 1 hvað þá 2) til að hann hefði nú einhvern félagsskap.

By the way.. finnst ykkur eitthvað að því að vilja ekki fá kisu úr Kattholti? Var að spyrjast fyrir á netinu um síður þar sem gefins kettlingar væru auglýstir og margir benntu á kattholt.. málið er að ég hef komið þarna, og aðbúnaðurinner hræðilegur. Ég væri bara hrædd um að fá einhvern geðsjúkann, taugaveiklaðann kött. Mér finnst þetta samt gott starf hjá þeim, en mér fannst aðbúnaðurinn ekki alveg nógu góður.. Meina 20 kettir í einu litlu herbergi, nánast ofan í hvor öðrum. Sumir voru úber kelnir meðan aðrir voru hvæsandi og hræddir.

Mataræðið fór smá út um þúfur út af þessu í dag, en fer í lag í kvöldmatnum (bara 1 ávöxtur þangað til).. svo ég segi bara góða skemmtun yfir Eurovision

(Smá vangaveltur samt í mér… hvort það virki að gera eins og í byrjun, svona ógeðisdæmi.. td gúffa í mig tonn af nammi, og byrja á núlli daginn eftir?, kallinum leist nú ekkert á þessa hugmynd mína..hehe hann hvetur mig óspart afram :)

05.19.06

Allt í botn

Skrifað í Uncategorized kl. 11:27 am af atakninas

Jám, þetta gengur mikið betur núna :)

Dagurinn í gær var 99%.. kláraði ekki grænmetið mitt, borðaði eitthvað en ekki nóg. Eina sem ég get sett út á! :)

Annnars verkjar mig í lærin innan verð eftir æfinguna á miðvikudaginn svo ég fór ekki í morgun. Þá meina ég verkjar, svona án þess að hreyfa mig þá finn ég fyrir eymslum og verkjum.

Stefni á fisk í kveldmat.

Eurovision, fékk ég mér ís :) DDv. HEf eitt um þessa keppni að segja: þetta er alltaf jafn skrítin úrslit! sum góð, sum furðuleg sum léleg, sem komast áfram.

En jæja, þarf að hætta, er í vinnunni.. Annars er kisi eitthvað lasinn greyjið.. ;(

05.17.06

Ekki 100%

Skrifað í Uncategorized kl. 9:05 pm af atakninas

Enn það er allt í lagi. Ný vika á morgun og einhvern veginn fannst mér auðveldara að hugsa til þess að byrja nýja viku að krafti en að klára þessa með krafti. O jæja, verður bara að hafa það.

Líklega veðrur mikið um fisk á þessu heimili þessa vikuna, fjárhagurinn eitthvað lélegur. Er að vonast eftir aukavöktum fram að sumarfríi. Mikið að gera maður! skrái mig á mánudaginn í fjarnám, hlakka gífurlega mikið til! get ekki beðið eftir að önnin byrji :) sumarönnin.. hehe en hún byrjar nú ekki fyrr en 10 júni ;( enn ég er búin að sanka að mér bókunum, og í raun bara 1 sem ég get virkilega lesið án þess að hafa neina námsáætlun og það er sjálfstætt fólk, sem ég las nú í fyrrasumar, en ég er búin með fyrstu 100 bls, þetta mun flýta helling fyrir. Get þá gert verkefnin úr bókinni strax, og einbeitt mér að restinni.

Jæja, ég fór semsagt til leiðbeinanda, tókum bara létt á því svona í fyrsta skipti í svoldinn tíma sem ég mæti, var í ca 30 mín. Vildum ekki hafa of mörg tæki svo ég yrði ekki leið, svo þau eru 6 sem vinna á 7 vegu. jám eitt þeirra hefur tvöfalda virkni..hehe

Svo svindlaði ég í kvöldmatnum, afgangur.. jæja þá er það búið og þýðir ekki að hugsa meira um það.

Enn ég hafði samviskubit, veðrið var gott og ég hafði ekker að gera..svo ég fór út að hjóla! :) var í um 30 mín og hjólaði um Grafarvoginn, bara eitthvað,upp og niður brekkur út og suður..hehe.. var að koma heim.

Enn jæja ég er að missa af byrjuninni á Americas Next top Model. og verð að fara að  horfa! :) hafiði það gott!

Kveðja

Nínas sem strögglar og vill ekki gefast upp! 

05.16.06

FALL!

Skrifað í Uncategorized kl. 11:36 pm af atakninas

OHH!!! Svoldið fúl út í sjálfa mig núna, en ég bara nenni ekki að skamma sjálfa mig… vissi að ég væri að gera rangt, valdi að gera þetta og ætla að reyna að taka þetta föstum tökum það sem eftir er af mínu átaki.

Ok, ég leyfði mér um helgina.. ok allt í lagi.. Borðaði eftir DDv að svona 90%. Svo í gær gekk allt vel þar til í kvöldmatnum…óvenju þreytt.. enda rósa á leiðinni og hún er alltaf þreytandi kellan sú.

Og það var keyptur kjúlli og franskar (kjúlli var vigtaður samkvæmt DDV, svo borðaði ég grænmeti og franskar.) aham… ekki sniðugt…

Jæja ekki tók betur við í dag.. ákvað að panta pizzu í kvöldmatinn.. og út af klúðri þá fengum við heilt hvítlauksbrauð frítt með.. omg.. sko hellingur eftir.. búin að ákveða að annað hvort étur kallinn þetta eða þetta fer í ruslið. Ætla ekki að svindla meir! meina ég væri ekki búin að léttast um 7.6 kg samkvæmt vigtinni heima, 6 kg samkvæmt íþróttaálfinum og guð veit hvað samkvæmt DDV (ætla ekki að mæta á morgun, busy dagur og ég kemst ekki) ef ég væri að leifa mér þessa hluti og hvað þá jafn oft og á síðustu dögum.

Verð bara að herða mig upp, gera þetta af fullum krafti, dugleg að fá mér ís í harðindum, vera með pottþétt plan, grænmeti og uppskriftir þegar ég kem heim úr vinnu.

Við ætlum að grilla eitthvað gott með Eurovison á laugardaginn.. Eitthvað bara DDV!

Ástæður gætu verið þessar fyrir mínu falli: Leti, leiði, smá agaleysi og stjórnleyfi, rósa sósa væntanleg, blekking vegna burtfarinna kg að þetta sé ekkert mál að balansera svona junk með ddv.

Held að margt af þessu sé bara lame afsökun, ég gerði þetta, valdi þetta og við það situr, ég bít í það súra og geri mér grein fyrir því að það gæti farið upp. En mig langar svooo niður fyrir 70 að ég bara get ekki, má ekki og vil ekki gefast upp! Svo við kallinn erum að reyna að sjóða saman áætlun, einhverja enn fremur hvatningu því mér finnst ég alltaf sjá svo lítinn mun á mér.. ennþá! Finnst ég enn svo slöpp og með bumbu ;(

ER svooo fegin að ég hringdi í WC strax á eftir mælingu hjá íþróttaálfinum og er æfingum flýtt um 2-3 vikur.. ætlaði að byrja í byrjun júní. Enn ég byrja í fyrramálið. Fer kl 7 í salinn með leiðbeinanda til að búa mér til prógramm. Ætla mér nú ekki að fara að lyfta á fullu, en samt eitthvað smá og helst brenna. Stefnan verður tekin á 3 æfingar í viku. Td 2x hjól/skokk/hlaup/gang/sund og svo 1x lyfta. Semsagt eitthvað af framantöldu plús 1x lyfta :)

Lýst vel á þetta, hlakka til, og vonandi kemur drifkrafturinn minn með fítonkrafti aftur til baka á morgun! Nenni ekki að veraí svona lægð, verð bara pirruð í skapi og verð leiðinlegt við kallinn ;( góða manninn minn.

Jæja..úff púff.. búin að létta aðeins á mínu hjarta, ætla að fara að lesa smá upp í rúmi.. fer í tiltekt á morgun eftir vinnu, í kvöld er afslöppun og fljótlega svefninn fyrir ræktina :)

Gangi ykkur vel! virkilega þarf á spörkum í rassinn núna!

Íþróttaálfur

Skrifað í Uncategorized kl. 1:27 pm af atakninas

Jæja íþróttaálfurinn mætti í morgun til að vigta mig og vinnufélagana.. við köllum vigtunar manninn íþróttaálf :) hehe

Jæja, 6 cm farnir í mittið frá hans mælingu, 6 kg farin, lækkað úr 28,1 BMI í 25.9 BMI og fitu%…HREYFÐIST EKKI!!!!! Honum fannst þetta eitthvað bogið, enn ég er auðvitað ekkert að æfa svo kannski er þetta ekki skrítið.. en samt.. eitthvað hefði hún mátt þokast niður!

Bara nokkuð ánægð með þetta :) vigtin sagði í morgun 72,4 :) rosalega ánægð með það.. 7,6 kg finnst mér hljóma óraunverulegt.. finnst ég ekki hafa grennst það mikið.. er enn í fituástandi að mínu mati.. ætla að fá prógramm í ræktinni á morgun.. byrja rólega.. kannski 2x í viku hjóla og 1x lyfta.. sé til. Vil ekki lyfta of mikið meðan ég er að léttast en gera samt eitthvað..eyk það svo vonandi jafnt og þétt.

 kveð í bili!

05.15.06

Darímda

Skrifað í Uncategorized kl. 11:10 am af atakninas

Jahahá.

Blöðrubólgan fór strax á föstudag, greinilega vinn hratt á svona dótaríi. Keyptum grill á fimmtudginn og grilluðum á laugardag og sunnud. EEEnnn þar sem okkur hafði verið sagt að grillið kæmi rétt eftir sex (en kom svo að ganga níu!!) þá borðuðum við ekkert fyrr en grillið kom og við kunnum ekkert á gasgrill svo við pöntuðum pizzu enda sársvöng. Svo fékk ég mér snúð og smá nammi á laugardaginn. Smá svindlhelgi.

Önnur svindl helgi verður kringum 4 júní, þá eigum við afmæli :) 7 ár saman.

Enn ég sá fallega tölu á vigtnni í morgun, long time no seen..sko.. 72,4 kg… :)

Vonast til að sjá hana á vigtinni á miðvikudagsmorgun.

Keyptum okkur skrifborð/tölvuborð….svakalega fínt :)

En jæja, þessi talva er eitthvað erfið til að skrifa á blogginu svo þetta verður ekki lengra, kíki á ykkur í kvöld.!

05.11.06

Dagur 44

Skrifað í Uncategorized kl. 9:46 pm af atakninas

Vá! 44 dagar, eða 1 og hálfur mánuður og 7 vika að byrja :) í lok 8 viku koma svo nýjar myndir.. mánaðarlegar fyrir og eftir.

Annars gekk smá á afturfótunum í dag hjá mér. Dagurinn byrjaði eiginlega í nótt.. vaknaði um 4 til að pissa.. ekkert mál með það.. fór inn aftur og gat ekki sofnað.. leið eitthvað skringilega..furðaði mig á því hvort þetta væri legið eða hvað það væri sem olli þessum óþægindum.. reyndi að sofna..en nei 10 mín síðar var ég í spreng..aftur! Fór.. en það komu nokkrir dropar…OGGGG ljósrautt alveg pínu lítið í pappirinn.. Fannst þetta nú skrítið.. var með skrítna tilfiningu.. milli kláða og sviða.. og átti erfitt með að sofna.. fann ekki nógu þægilega stellingu.. fór 2x í viðbót og í seinna skiptið fór ég fram með bók í smá tíma, hélt mér liði kannski betur sitjandi.. og það kom alltaf meira og meira í pappírinn. Var farina ð velta fyrir mér hvort ég væri að fá milliblæðingar.. en ath málið betur og komst að því að þetta væri ekki tiðablóð.. Var nú bara svo þreytt þarna kl 6 í morgun að ég bara hafði ekki rænu á að verða áhyggjufull.. meina blóð þegar þú pissar er ekki normalt!
Jæja svo sofnaði ég loks eftir langa mæðu.. vaknaði um 9… og þá var sko heldur betur rautt! Hringdi í mömmu til að fá hana til að staðfesta það að blóð í þvagi gæti verið 1 af einkennum blöðrubólgu.. hún varð nú bara áhyggjufull og hélt þetta gæti verið alvarlegra..og stressaði mig aðeins með því.. en maður er nú barnið hennar :) svo skiljanlega verður hún áhyggjufull ef eitthvað er að, enda langt á milli okkar.
Hringdi á bráðamótökuna, bara til að vita hvert ég ætti að fara, er ekki með lækni hér í Rvk. Þurfti að hringja á 3 staði þar til mér var sagt að Hjúkka myndi hringja í mig þegar hún yrði laus.
Jæja, hún hringdi, spjölluðum um einkennin og ég átti að koma með prufu. Þar sem það kom minna blóð kom ég með tvær, var ekki viss hvort þetta greindist í þvaginu.
Jújú.. Hvít blóðkorn, prótein og blóð í þvagi.
Kannski ekki nema von að ég hef veirð slöpp.. Svæsin blöðrubólga sem hefur verið að grassera í einhvern tíma.. fann samt ekki til fyrr en í nótt..nema 1x-2x á þriðjudaginn. Læknirinn sagði að blaðran væri eitthvað tætt og því blæddi úr henni… hljómaði ekki vel. Fékk Monotrim og ef þetta lagast ekki eftir þann skammt þá fæ ég ný lyf. Fékk einnig símatima við hann á þriðjudaginn og fæ að vita úr ræktuninni.
Svo að í dag er ég búin að vera að míga blóði.. er enn að því.

Var svo mikið niður fyrir í dag að ég gleymdi morgunávextinum… enn ég bjarga því í kvöld :) Er aftur farin að auka við mig grænmetið smátt og smátt þar sem að maginn er kominn í lag, hef farið rólega í það.

Svo keyptum við okkur Gasgrill áðan á tilboði í Hagkaup :)

Vil biðjast afsökunnar ef þessar pissuferða lýsingar og blóð saga fer illa í ykkur. Eins og ein sagði þá er þetta nokkurskonar dagbókin mín, finnst gott að geta sett þetta hérna inn, hvernig mér líður og svona.

Hafiði það gott!

05.10.06

Vika 6 að klárast

Skrifað í Uncategorized kl. 12:06 pm af atakninas

Jæja þá er vika 6 að verða búin.. eins og ég sagði áður þá gekk hún ekki neitt rosalega vel, kláraði ekki skammtana.. en var ekki að borða neitt sem ég mátti ekki..hehe nema einstaka sykurlaust nammi dót.

Enn þessi vika skal verða betri! :)

Vigtunin sagði 500g niður og er ég því komin í 74,1 kg í DDV vigtinni. hehe ég hughreysti mig bara með tölunni sem ég sé á morgnanna hér heima, hún segir meira niður..og hvetur mig til að gefast ekki upp þó ég eigi erfitt…þá falla ekki alveg þó ég láti eftir mér smá sykurlaust nammi. En ekkert svoleiðis þessa vikun! bara hollusta og kláraðir skammtar!

 Jæja ætla að klára að borða og halda áfram að læra undir próf! Er svoldið á eftir því ég hafði misreiknað hvað ég ætti eftir að glósa marga kafla þegar ég byrjðai í gær, hélt þeir væru 2 (og var langt komin með annan) en þeir voru þá 4! Og það 2 langir, 1 stuttur og byrjuð á 1.. en jæja, þýðir ekkert að sýta það bara nýta tímann.

Gangi ykkur vel!

05.09.06

Gengur lalala

Skrifað í Uncategorized kl. 4:41 pm af atakninas

Jæja það gengur lalala þessa vikuna. Hef átt í smá vandræðum með að klára mjólkina.. ja vandræðm, smandræðum..bara ekki gert það. Smá lystarleysi á sunnudaginn, vaknaði seint og hafði ekki lyst á að sporðrenna svo miklum mat fyrir kvöldmat eða þá eftir kvöldmat. Svo ég sleppti hádegismatnum.. ekki sniðugt I know.

Annað sem er að plaga mig er svengd, er fairn að vera svo svöng frá ca 3 þó ég fái mér heilan banana þá! já heilan! eyði 2 ávöxtum í kaffitímann :) hehe

Svo var ég dugleg að baka á laugardaginn og kláraði extra fyrir nokkra daga og hef ekki fengið neitt á kvöldin í smá tíma og spá hvort það sá ástæðan fyrir því að mig langar gífurlega ógurlega ofsalega mikið í eitthvað gott.. 1 samloku með skinku, osti og pepperoni eða nammi..eða bara eitthvað.. skál af cherios væri fínt líka með sætuefni..bara langar í eitthvað og þegar ég er svöng fer sko nammi og sukk púkinn á stjá tvíefldur.

Eina sem ég hef gert til að láta undan honum er að stinga upp í mig sykurlausu nammi, td smint og extra mola dót eitthvað. 1-4 stk (þá úr pakkanum, ekki 4 pakka!) á dag, síðustu 3  daga… bara 1 í dag.. úff..

Ætla að passa að ég fái eitthvað gott á kvöldin næstu viku og ath hvort ég verði minna leið þá.. prufa líka fleiri mataruppskriftir.

 Jæja er farin að lesa fyrir prófið. Próf annað kveld. 

05.06.06

Djamm

Skrifað í Uncategorized kl. 4:01 pm af atakninas

Úff.. ég fór út að borða í gær á Nings með vinkonu minni, fékk mér auðvitað ddv vænan rétt. Fannst þetta eitthvað svo þurrt.. átti að vera í ostrusósu en ég bara sá enga sósu, var jú eitthvað smá utan á kjötinu en samt… svo það grænmeti sem ég fékk, td blómkál finnst mér ekki gott hrátt og þetta var greinilega bara léttsteikt grænmeti, svo mér fannst þetta ekki gott… nema kjötið og grjónin. Svo ég borðaði kannski hálfan grænmetisskammtinn minn.

Svo fórum við á rúntinn, vorum að rúnta til hálf ellefu og ákváðum þá að skella okkur á djammið, báðar edrú :)

Hringdum í vinkonu okkar, pikkuðum hana upp, náðum í föt og dót heim og fórum til hennar. tókum okkur til og svo fórum við í bæinn..vorum komnar svoldið seint niður í bæ en það var allt í lagi.. röltum aðeins um og fórum svo á sólon..

Svoldið skondið að vera edrú á djamminu…fer sjaldan og yfirleitt í glasi þegar ég fer. En jæja vorum að fylgjast með fólkinu þegar að dyraverðirnig hlaupa upp á næstu hæð alveg á fleygiferð. koma svo niður og eru að fylgja gaur út, eitthvað að ræða við hann, virtistí góðu.. þegar risa rumur labbar í mestu makindum að þeim og kýlir þennan sem var verið að fylgja út beint í faceið! Gaurinn lyppaðist bara niður og lá á gólfinu við barborðið, var svo vankaður með blóðnasir. úff.. djöfull hefur þetta verið sárt. Rumurinn fór bara glottandi út af barnum og svo var þessum vankaða bara fylgt út! Veltum fyrir okkur hvort að dyraverðirnir vildu að slagsmál brytust út fyrir utan.

Við fórum fljótlega eftir þetta og enduðum á hressó. Mjög gaman, en mikið af vel drukknu liði..og djöfull er erfitt að dansa þegar maður er ekki drukkin og allir að rekast í mann! fer mikið meira í pirrurnar á mér edrú. Jæja svo eftir svoldinn tíma þá er ein stelpa vel drukkin alltaf að rekast í vinkonu mína..aðallega því hún var svo drukkin að hún skjögraði um á gólfinu.. svo lít ég á hana eftir einhvern tíma og þá stóð hún á miðju dansgólfi með sígó í hendi og ældi! og allir bara dansa á fullu í kringum hana.. svo stóð hún þarna í smá stund,hálf dillandi sér og fór loks samt. OJJ!

Við kíktum á glaumbar og gaukinn svona rétt áður en við fórum heim.. fullt af svertingjum í svona hipp hop fötum alveg over the top! furðlegt..leið eins og þetta væri lið í bíomynd, enginn ísl gengur alveg svona mikið hip hop, með bling bling og læti!

Svo fóru þær á Nonna og ég var alveg að drepast úr hungri en fékk mér ekki neitt, ekki einu sinni smakk hjá þeim. Fórum svo út í bíl þar sem þær borðuðu og svo fórum við heim. Var komin í rúmið 5 mín í 5. Alveg ágætis djamm.

Vaknaði svo um hálf 2 ca.. rosalega endurnærð..hef örugglega aldrei sofið svona vel eftir djamm.. hehe búin að borða morgunmat og hádegismat. Ætlum að grilla á eftir.

Jæja þarf að fara að verssla, ísskápurinn hálf tómur eitthvað. 

Previous page · Next page