05.03.06
I BELIEVE!!
HEHE já ég trúi núna alveg að ég sé að ná árangri!
Byrjaði reyndar illa dagurinn, eða svoleiðis.. Sofnaði ekki fyrr en um 5 í morgun… bara var glaðvakandi.
Vaknaði pínu of seint, en allt í lagi samt.
Fór í vigtun um hálf fjögur og komst að því mér til mikillar ánægðu að það fóru 1,1 kg þessa vikuna!
og þá eru farin 4,9 samkvæmt ddv. Voru farin 5,8 kg á heimavigtinni síðasta laugardag, svo ég er spennt að vita hvað verði núna á laugardaginn!
Og ég á alveg von á, þar sem talan var 74,6 kg að ég sái 73 komma eitthvað í næstu viku!
omg hvað ég hlakka til!
Jæja ég fór svo í smárann til að drepa tímann því það var alveg klst þar til ég átti að ná í kallinn og hann vinnur í holtasmára. Jæja ég kíkti í skartgripabúðirnar að ath hvað giftingahringir kosta (fékk svar frá 25-70 þús og voru þetta bara plain gullhringir!!!) er alltaf að ath hvað þetta kostar allt saman svo maður viti nú hvað maður er að fara ð eyða í, hvað maður þarf að spara og hve lengi. Ath líka smá með leigu á fötum.
Jæja ég kom svo við hjá frænku minni í Dorothy perkins, hún vinnur þar. Hef ekki séð hana lengilengi. Allt of lengi. Við vorum að spjalla svona inn á milli þess sem hún afgreiddi og þá var spurt um gallapils, stutt sem var nýkomið, var bara verið að taka úr kassanum þegar ég kom. Mjög flott.
Og svona þar sem ég geng aðallega í buxum orðið með teygju í mittið þá finn ég svo lítinn mun á buxunum svo mig langaði að ath með pilsið í buxnanr nr minna en ég er vön.. hún hrofði aðeins á mig og sagði að ég þyrfti örugglega nr minna en það. Ég ákvað að taka bæði pilsin. Og bol í nr minna en ég er vön.
Og mátaði stærra pilsið, passaði en var samt á mörkunum að vera of vítt í mittið.. hehe en mér fannst þetta auðvitað æði, minna nr! Svo ég ákvaðað máta hitt því frænka haðfi sagt mér að taka það líka. Smell passaði! Mætti ekki vera minna en er samt ekki það þröngt að maður þurfi að draga inn andann til að fara í þær
hehe..bara passar. Og bolurinn smellpassaði líka!
Fékk þetta á 2500 kr! Auðvitað keypti ég sko
hehe
Fann svo sæta peysu við, svona stutta peysu/ermar með bundið að framan mjög sætt. ehem.. og ég sem ætlaði ekki að kaupa neitt!
en þetta var nú ekki dýrt svo.
Vil bara þakka innilega fyrir fallegu commentin frá ykkur! Orna manni um hjartarætur!
takk takk.
En hér kemur mælistikan!
05.01.06
Komnar myndir!
Jæja þá eru komnar inn myndir hér til hliðar
til hægri.
Hehe smá bras hjá mér að hafa þetta í réttri stærð, koma þeim inn ofl. En þetta tókst. Kallinn ætlaði að sýna mér og kenna mér þetta í gær en þá var myndavélin rafmagnslaus svo ég kom þeim ekki einu sinni inn í tölvuna, og þá gengur ekkert að vera segja mér að gera hitt og þetta ef það er ekki nein mynd til að sýna þetta á.
Svo í morgun þegar ég vaknaði þá hafði hann gert svona hljóðupptöku með leiðbeiningum
hehe svo ég þurfti bara að hlaða batteríin á myndavélinni og svo fara eftir upptökunni. Gekk bara mjög vel, fyrir utan dútl við að finna stærðina sem ég vildi osfrv.
Er bara nokkuð ánægð með þetta
stolt af mér hehe!
Enn vonandi hafiði gaman af þessum myndum og vonandi sjáið þið eitthvað sem ég sé ekki. Sé engan mun á mér ;( sem mér finnst fúlt, samt er fólk að segja að það sjáist alveg á mér að ég sé búin að léttast eitthvað, en ég sé ekki neitt! Þarf kannski ný gleraugu!?
En vonandi hafiði það gott! Vigtun eftir 2 daga, krossa fingur! Búin að vera dugleg! ekkert svindl
Einnig ef einhvern vantar á linkalistann minn og vill vera á listanum endilega segiði frá því í comments..
04.29.06
Vika 5 hálfnuð
Vika 5 er hálfnuð og so far so good. Langar nú samt í nammi ;(
En jæja.. fæ mér ís á eftir.
Prufaði að baka kryddkökuna.. fannst hún ekki góð,hefði verið góð ef ekki væru þessar sveskjur í henni. Jukk. Eplakakan var betri. Prufa eitthvað annað næst. Eru einhverjar að baka bara hálfa uppskrift? Semsagt sem passar akkurat í hádeginu í stað 2 daga köku? Bara spekúlera.
Annars með myndirnar, ja ég kann ekki að setja þetta inn og kallinn þarf að hjálpa mér, og hingað tilhefur hann ekki nennt því. Læt vita þegar þær eru komnar inn.
Farin að hlakka svo til að fara í vigtun, vildi bara óska að tíminn liði hraðar! hehe get varla hugsað um annað þessa dagana en hvað gerist í næstu vigtun! OMG! hvað maður er orðin sjúkur!
Annars var ég svo glöð í morgun!
ætla framvegis að vigta mig um helgar heima..bara sjá hvað ég er dugleg. Þó DDV vigtin sé aðeins öðruvísi, enda í fötum og búin að borða og drekka helling (en samt fer hún slatti niður þar) þá er hún næstum komin niður um 6 kg hérna heima! OMG! trúði þessu varla í morgun. 74.2 kg. OMGOMGOMGOMGOMGOMG!!
Trúði þessu ekki!!! Og hlakka svo til næstu helgi hehehehehehe því vonandi fer nú meira en 300 g af mér
hehe og þá sé ég 73 eitthvað kg!!! ohhhh hef ekki séð þá tölu í svona 1 næstum 2 ár líklega! og þá ætla ég að prufa gallabuxur sem ég hef ekki komist í lengi. Uppáhaldsbuxurnar mínar
hehe keypti þær eftir átaksnámskeið fyrir..hmm það var vorið 2003 og gat gengið í þeim í kannski ca ár. Vonandi passa þær.. held samt ég hafi verið aðeins léttari en 73 kg.. en kemur í ljós!
Hvernig gengur ykkur?
04.26.06
Vika 4 að ljúka, vika 5 að byrja!
Jæja
ég brunaði semsagt í vigtun aðan. Þvílikt spennt, en eitthvað kvíðin líka. Var alveg með fiðring í maganum þegar ég steig á vigtina!
hehe ekkert smá spennt!
Allavega talan var 75,7 kg! sem er bara 700g meira en vigtin heima segir á morgnanna á tómann maga á evuklæðunum! Vúhú! Og það þýðir! að ég léttist um!
2,1 kg!!!!! þessa vikuna! hehe
Þetta hefur þá farið af svona:
vika 1 – 1,7 kg
vika 2 – 1,2 kg
Vika 3 + 1,2 kg ;( páskar!
Vika 4 – 2,1 kg!
Sem gera 3,8 kg á 4 vikum. Ekki svo slæmt ha!?
Er að fara á kaffihús í kvöld að hitta stelpur sem ég er nýbúin að kynnast. Hlakka til að hitta þær. Ef ég fæ mér eitthvað annað en vatn þá verður það sykurlaust gos.
Var að spá í einu, nú var ég 80 kg á heimavigtinni þegar ég byrjaði en 79,5 á DDv vigtinni. Miðað við heimavigtina er ég búin að léttast um 5 kg en DDv 3,8 kg.
Ef þið eruð spurðar hvaða tölu segiði þá? semsagt spurðar “hvernig gengur? Hvað er farið mikið?” ég nenni ekki að útskýra þetta alltaf í hvert skipti hehe
og veit því ekki hvað ég ætti að segja, enginn rosalegur munur á tölunum, 1,2kg en 5 kg hljóma betur en 3,8. En samt er ég ekki viss.
Jæja, ætla að skella inn mælistiku hér fyrir neðan, með hjálp Kallsins
svo ég geti gert það sjálf næst. Svo í kvöld koma svo fyrir og eftir myndir! kallinn neitaði að taka fyrr
hehe
04.25.06
Jæja ný síða
Er enn að læra á þessa síðu, svo þið verðið bara að vera þolinmóð.
Vigtun á morgun. Hlakka til eins og ég sagði áður en kvíði líka. Veit ekki af hverju. Gengur bara vel.
Ætla að fikta aðeins meira í þessari síðu minni.
Hello world!
Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!

