maí 1, 2006

Komnar myndir!

Posted in Óflokkað kl. 4:58 e.h. af atakninas

Jæja þá eru komnar inn myndir hér til hliðar 🙂 til hægri.

Hehe smá bras hjá mér að hafa þetta í réttri stærð, koma þeim inn ofl. En þetta tókst. Kallinn ætlaði að sýna mér og kenna mér þetta í gær en þá var myndavélin rafmagnslaus svo ég kom þeim ekki einu sinni inn í tölvuna, og þá gengur ekkert að vera segja mér að gera hitt og þetta ef það er ekki nein mynd til að sýna þetta á.

Svo í morgun þegar ég vaknaði þá hafði hann gert svona hljóðupptöku með leiðbeiningum 🙂 hehe svo ég þurfti bara að hlaða batteríin á myndavélinni og svo fara eftir upptökunni. Gekk bara mjög vel, fyrir utan dútl við að finna stærðina sem ég vildi osfrv.

 Er bara nokkuð ánægð með þetta 🙂 stolt af mér hehe!

Enn vonandi hafiði gaman af þessum myndum og vonandi sjáið þið eitthvað sem ég sé ekki. Sé engan mun á mér ;( sem mér finnst fúlt, samt er fólk að segja að það sjáist alveg á mér að ég sé búin að léttast eitthvað, en ég sé ekki neitt! Þarf kannski ný gleraugu!? 🙂

En vonandi hafiði það gott! Vigtun eftir 2 daga, krossa fingur! Búin að vera dugleg! ekkert svindl 🙂

Einnig ef einhvern vantar á linkalistann minn og vill vera á listanum endilega segiði frá því í comments..