maí 9, 2006

Gengur lalala

Posted in Óflokkað kl. 4:41 e.h. af atakninas

Jæja það gengur lalala þessa vikuna. Hef átt í smá vandræðum með að klára mjólkina.. ja vandræðm, smandræðum..bara ekki gert það. Smá lystarleysi á sunnudaginn, vaknaði seint og hafði ekki lyst á að sporðrenna svo miklum mat fyrir kvöldmat eða þá eftir kvöldmat. Svo ég sleppti hádegismatnum.. ekki sniðugt I know.

Annað sem er að plaga mig er svengd, er fairn að vera svo svöng frá ca 3 þó ég fái mér heilan banana þá! já heilan! eyði 2 ávöxtum í kaffitímann 🙂 hehe

Svo var ég dugleg að baka á laugardaginn og kláraði extra fyrir nokkra daga og hef ekki fengið neitt á kvöldin í smá tíma og spá hvort það sá ástæðan fyrir því að mig langar gífurlega ógurlega ofsalega mikið í eitthvað gott.. 1 samloku með skinku, osti og pepperoni eða nammi..eða bara eitthvað.. skál af cherios væri fínt líka með sætuefni..bara langar í eitthvað og þegar ég er svöng fer sko nammi og sukk púkinn á stjá tvíefldur.

Eina sem ég hef gert til að láta undan honum er að stinga upp í mig sykurlausu nammi, td smint og extra mola dót eitthvað. 1-4 stk (þá úr pakkanum, ekki 4 pakka!) á dag, síðustu 3  daga… bara 1 í dag.. úff..

Ætla að passa að ég fái eitthvað gott á kvöldin næstu viku og ath hvort ég verði minna leið þá.. prufa líka fleiri mataruppskriftir.

 Jæja er farin að lesa fyrir prófið. Próf annað kveld.