maí 16, 2006

FALL!

Posted in Óflokkað kl. 11:36 e.h. af atakninas

OHH!!! Svoldið fúl út í sjálfa mig núna, en ég bara nenni ekki að skamma sjálfa mig… vissi að ég væri að gera rangt, valdi að gera þetta og ætla að reyna að taka þetta föstum tökum það sem eftir er af mínu átaki.

Ok, ég leyfði mér um helgina.. ok allt í lagi.. Borðaði eftir DDv að svona 90%. Svo í gær gekk allt vel þar til í kvöldmatnum…óvenju þreytt.. enda rósa á leiðinni og hún er alltaf þreytandi kellan sú.

Og það var keyptur kjúlli og franskar (kjúlli var vigtaður samkvæmt DDV, svo borðaði ég grænmeti og franskar.) aham… ekki sniðugt…

Jæja ekki tók betur við í dag.. ákvað að panta pizzu í kvöldmatinn.. og út af klúðri þá fengum við heilt hvítlauksbrauð frítt með.. omg.. sko hellingur eftir.. búin að ákveða að annað hvort étur kallinn þetta eða þetta fer í ruslið. Ætla ekki að svindla meir! meina ég væri ekki búin að léttast um 7.6 kg samkvæmt vigtinni heima, 6 kg samkvæmt íþróttaálfinum og guð veit hvað samkvæmt DDV (ætla ekki að mæta á morgun, busy dagur og ég kemst ekki) ef ég væri að leifa mér þessa hluti og hvað þá jafn oft og á síðustu dögum.

Verð bara að herða mig upp, gera þetta af fullum krafti, dugleg að fá mér ís í harðindum, vera með pottþétt plan, grænmeti og uppskriftir þegar ég kem heim úr vinnu.

Við ætlum að grilla eitthvað gott með Eurovison á laugardaginn.. Eitthvað bara DDV!

Ástæður gætu verið þessar fyrir mínu falli: Leti, leiði, smá agaleysi og stjórnleyfi, rósa sósa væntanleg, blekking vegna burtfarinna kg að þetta sé ekkert mál að balansera svona junk með ddv.

Held að margt af þessu sé bara lame afsökun, ég gerði þetta, valdi þetta og við það situr, ég bít í það súra og geri mér grein fyrir því að það gæti farið upp. En mig langar svooo niður fyrir 70 að ég bara get ekki, má ekki og vil ekki gefast upp! Svo við kallinn erum að reyna að sjóða saman áætlun, einhverja enn fremur hvatningu því mér finnst ég alltaf sjá svo lítinn mun á mér.. ennþá! Finnst ég enn svo slöpp og með bumbu ;(

ER svooo fegin að ég hringdi í WC strax á eftir mælingu hjá íþróttaálfinum og er æfingum flýtt um 2-3 vikur.. ætlaði að byrja í byrjun júní. Enn ég byrja í fyrramálið. Fer kl 7 í salinn með leiðbeinanda til að búa mér til prógramm. Ætla mér nú ekki að fara að lyfta á fullu, en samt eitthvað smá og helst brenna. Stefnan verður tekin á 3 æfingar í viku. Td 2x hjól/skokk/hlaup/gang/sund og svo 1x lyfta. Semsagt eitthvað af framantöldu plús 1x lyfta 🙂

Lýst vel á þetta, hlakka til, og vonandi kemur drifkrafturinn minn með fítonkrafti aftur til baka á morgun! Nenni ekki að veraí svona lægð, verð bara pirruð í skapi og verð leiðinlegt við kallinn ;( góða manninn minn.

Jæja..úff púff.. búin að létta aðeins á mínu hjarta, ætla að fara að lesa smá upp í rúmi.. fer í tiltekt á morgun eftir vinnu, í kvöld er afslöppun og fljótlega svefninn fyrir ræktina 🙂

Gangi ykkur vel! virkilega þarf á spörkum í rassinn núna!

4 athugasemdir »

  1. zand said,

    Búið og gert… ekkert vera að hugsa um það meira. Koma sér aftur af stað. Dugleg ertu að byrja strax í ræktinni. Er stolt af þér. Gangi þér rosalega vel 🙂

  2. koma svo…..getur ekkert gert við þessu þar sem þetta er búið og gert nema snúa við blaðinu og kýla á þetta líst vel á íþróttarálfin og ég hugsa að málið sé að gleyma svindli vikunnar og byrja aftur.

  3. Hildur said,

    oh var þetta ekki gott!! Sko ekki maturinn heldur að létta á sér hér inni. Til hamingju með að hafa viðurkennt þetta svindl fyrir sjálfri þér og okkur. Margir hefðu nú bara leynt þessu og haldið áfram að svindla. En nei ekki þú, það sýnir bara að þú hefur viljann og styrk til þess að halda ótrauð áfram og gleyma þessum dögum sem eru liðnir. Við getum ekkert gert við því sem er liðið. Við getum aðeins lifað í núinu og það er einmitt þá sem við getum tekið réttar ákvarðanir varðandi líf okkar. Mundu að það er þú sem ert hetjan og það ert þú sem ræður ALGJÖRLEGA hvað fer ofan í þig.

    Gangi þér rosalega vel og mundu að þú getur ALLT sem þig langar 🙂

  4. 75kg said,

    Þetta gerist bara stundum og maður verður að díla við það, svona er þetta bara. Maður verður bara að rífa sig upp á rassgatinu áður en að í óefni er komið, trúðu mér, þekki það! 😉 En gaman að þú skulir vera að fara í WC besti staðurinn minn í heiminum þessa dagana, vonandi gekk vel hjá leiðbeinandanum! 🙂


Færðu inn athugasemd